Forsíða
Dagskráin
Um okkur
Tenglar
Hafnardagalagið
Hafðu samband
Styrktaraðilar
Dagskrá Hafnardaga

Mánudagur 31. maí
9:00 Útvarp Hafnardagar hefur útsendingu á fm 106,1
20:00 Keppni í brennó eða kóngabolta á íþróttaleikvangi Þorlákshafnar við íþróttahús. Skipt í lið á staðnum.

Þriðjudagur 1. júní
20:00 Tónleikar í Þorlákskirkju með Jónasi Ingimundarsyni, píanóleikara og Gunnari Guðbjörnssyni tenórsöngvara. Íslensk og skandinavísk sönglög. Aðgangur 1.500 kr.

Miðvikudagur 2. júní
10:30 Opnun útiljósmyndasýningar við Selvogsbraut. Börn úr leikskólanum Bergheimum syngja við opnunina.
20:00-22:00 Sundlaugarpartý í íþróttamiðstöðinni fyrir börn 8-13 ára

Fimmtudagur 3. júní
14:00-16:00 Listasmiðja fyrir börn - málað á steina fyrir framan félagsmiðstöðina
19:30-22:00 Karókí fyrir krakka í húsi Kiwanisklúbbsins Ölver. Hafdís Þorgilsdóttir býður börnin velkomin
20:00-23:00 Tónleikar með hljómsveitinni BUFF í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss. Hljómsveitin Frozen hitar upp
21:00-23:00 Sundlaugarpartý fyrir ungmenni fædd 1996 og fyrr

Föstudagur 4. júní
9:00-16:00 Vinnustofa VISS verður með opið í nýju húsnæði að Unubakka 4, 2. hæð. Heitt á könnunni og allir velkomnir
15:30 Ný vefsíða Sveitarfélagsins Ölfuss verður opnuð í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss. Boðið upp á kaffi og konfekt auk þess sem Jónas Ingimundarson, píanóleikari flytur nokkur lög.
16:00-18:00 Í framhaldi af opnun vefsíðu, verður ný sýning opnuð í Gallerí undir stiganum, á bókasafninu. Þorgrímur Ármann Þórgrímsson sýnir uppstoppuð dýr og eggjasafnið sitt. Einnig kemur verða lifandi páfagaukar Þorgríms Ármanns á bókasafninu alla helgina. Valdir munir Byggðasafns Ölfuss verða á sýningu í anddyri Ráðhússins.
20:00 Skrúðgöngur úr hverfum - litaskrúðganga- sem endar í skrúðgarði. Félagar í Fornbílaklúbbi Íslands taka þátt. í Skrúðgarðinum ávarpar Barbara Guðnadóttir, menningarfulltrúi gesti. Hafnardagalagið verður flutt og síðan býður hvert hverfi upp á atriði. Kiwanisklúbburinn býður hinsvegar upp á humarsúpu og að lokum sjá Vinir Þorlákshafnar um fjöldasöng og tónlist.
22:30 Opið í Ráðhúskaffi. Skarphéðinn Haraldsson, Júlí Heiðar Halldórsson og Hljómsveitin Gegndrepa flytja tónlist.

Laugardagur 5. júní
10:00-12:00 Dorgveiðikeppni á Suðurgarði í umsjón Stangveiðifélagsins Árbliks.
11:00-15:00Boðið upp á siglingu um höfnina með Hreggvið; farið frá smábátahöfn.
11:00-16:00 Dagný Magnúsdóttir verður með opna vinnustofu sína Hendur í höfn að Unubakka 10-12. Allir velkomnir
11:30 Félagar úr Fornbílaklúbbi Íslands rúnta með eldri borgara um bæinn. Rúnturinn endar við bryggju fyrir þá sem þess óska.
12:30 Körfuknattleiksdeildin ætlar að selja heitar humarpylsur og hefðbundnar pylsur með öllu á bryggjunni.
13:00 Lagt frá bryggju í skemmtisiglingu. Allir velkomnir um borð í boði Útvegsmannafélags Þorlákshafnar.
14:00-16:00 Skemmtidagskrá við höfnina að lokinni skemmtisiglingu. Harmonikkufélag Selfoss – kappróður – reipitog – koddaslagur - kassaklifur – “Big splash” (14 ára og eldri) – hoppukastalar og fleira. Kynnir er Bessi hressi
13:00-18:00 Opið hús hjá Leikfélagi Ölfuss í gamla hafnarvigtarhúsinu. Frönsk kaffihúsastemning, listasmiðja fyrir börn þar sem búið verður til brúðuleikhús og andlitsmálun
Magnús Grímsson flýgur yfir hátíðarsvæðið og dreifir sælgæti í boði bakarísins
Að lokinni dagskrá við bryggju verður bílasýning fornbílaklúbbs Íslands á planinu við bakaríið
14:00-18:00 Ljósmyndasýning í Vitanum: Ragnar Magnússon sýnir ljósmyndir úr ferðum Ferðamálafélags Ölfuss.
Handverks- og flóamarkaður í Grunnskólanum - kaffihúsastemning
Uppstoppaðir fuglar, egg, munir byggðasafnsins og lifandi páfagaukar eru meðal þess sem verður að sjá og upplifa á Bæjarbókasafni Ölfuss
19:00 Hátíðardansleikur í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss á vegum Knattspyrnufélagsins Ægis. Matur, skemmtiatriði og dansleikur. 18 ára aldurstakmark.

Sunnudagur 6. júní
10:30 Messa í Þorlákskirkju, fermnig og blómsveigur lagður að minnisvarða.
11:00-16:00 Opið hús í vinnustofunnu Hendur í höfn að Unubakka 10-12
12:00-16:00 Boðið upp á siglingu um höfnina með Hreggvið; farið frá smábátahöfn.
14:00 Göngutúr með leiðsögn, Eddu Laufeyjar Pálsdóttur um sögustaði í Þorlákshöfn. Lagt af stað frá Bæjarbókasafninu og endað við vita.
14-18 Bókamarkaður á Bæjarbókasafni Ölfuss og sýning á uppstoppuðum fuglum, eggjum, munum Byggðasafns Ölfuss og lifandi páfagaukum á Bæjarbókasafninu. Einnig bókamarkaður.
Ljósmyndasýning í Hafnarnesvita; Myndir Ragnars Magnússonar úr ferðum Ferðamálafélagsins.
Handverksmarkaður, götustemning og hoppukastalar við Grunnskólann
14-16 Dagskrá við Grunnskólann: Leikararnir Jóhann G. og Jalldór Gylfason skemmta allri fjölskyldunni. Síðan er hæfileikakeppni sem allir geta tekið þátt í - skráning á bókasafninu. Að því loknu flytur Skarphéðinn Haraldsson nokkur lög á gítarinn.
15-17 Kaffisala Slysavarnafélagsins Mannbjargar í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss
16:00-18 Hverfamót á íþróttavelli
19:00 Dagskrárlok - útvarpsútsendingu lýkur

 
Hafnardagar í Þorlákshöfn 2010