Hverfi - litasvæði
Af tilefni Hafnardaga er bænum skipt upp í hverfi og hvert hverfi hefur ákveðinn lit. Dreifbýlið er að sjálfsögðu með og hefur einnig sinn fjólubláa lit.
Götugrill verður í hverju hverfi föstudaginn 3. júní og í kjölfarið er lagt af stað í skrúðgöngu. Gula hverfið hefur boðið dreifbýlinu að grilla með sér við íþróttamiðstöðina.
Bláa hverfið byrjar skrúðgönguna kl. 20.
Dreifbýlið er fjólublátt svæði. Svæðastjóri er Hrönn Guðmundsdóttir
Brautirnar eru blátt svæði. Svæðisstjóri er Ágústa Ragnarsdóttir
Hraunin og Byggðir eru rautt svæði. Svæðisstjóri er Hulda Gunnarsdóttir
Bergin er grænt svæði. Svæðisstjóri er Árný Leifsdóttir
Fésbókarsíða fyrir græna hverfið
Búðirnar eru gult svæði. Svæðisstjóri er Þráinn Jónsson
