Hafnardagar

Sveitarfélagið Ölfus

Þorlákshöfn 60 ára

Árið 1951 voru fyrstu þrjú húsin byggð á Oddabrautinni, B-götu, en þau marka upphaf byggðarkjarnans Þorlákshafnar. Árið 2011 halda íbúar Ölfuss upp á sextíu ára afmæli þéttbýlisins Þorlákshafnar. Haldin verður vegleg afmælishátíð dagana 1.-5. júní, um Hafnardagahelgina. Íbúar Ölfuss bjóða brottflutta Ölfusinga sérstaklega velkomna en einnig alla sem hafa áhuga á að fagna með þeim og skemmta sér við margvíslega dagskrárliði.

Stiklað á stóru um sögu Þorlákshafnar
Þrátt fyrir að þéttbýlið Þorlákshöfn sé mjög ungt miðað við aðra byggðarkjarna á Íslandi, þá á verstöðin Þorlákshöfn sér langa sögu. Nafnið er dregið af Þorláki helga Skálholtsbiskup (1178-1193). Jörðin tilheyrði lengi Skálholtsstóli en var seld árið 1785. Fram til ársins 1934 var Þorlákshöfn í eigu einstaklinga, en þá keypti Kaupfélag Árnesinga hana. Árnes- og Rangárvallasýslur keyptu Þorlákshöfn árið 1946 og áttu til ársins 1971 þegar Ölfushreppur eignaðist jörðina og hefur átt síðan.
Landslagið um Þorlákshöfn hefur verið fremur hráslagalegt og óblítt með hraunbreiðuna og svartan sandinn. Eldri íbúar bæjarins muna eftir að stundum var ófært til Þorlákshafnar eftir rok sem skóf sand yfir veginn. Enn er talað um að keyra sandinn þegar komið er niður úr Þrengslum og ekið áleiðis til Þorlákshafnar. Árið 1935 hóf Sandgræðslan uppgræðslu í landi Þorlákshafnar. Í kjölfarið lagðist sauðfjárbúskapur að mestu af en búið var með kýr til ársins 1951.
Sjór var sóttur frá Þorlákshöfn svo lengi sem heimildir greina. Lending fyrir áraskip var nokkuð góð og gengu þaðan á fjórða tug skipa þegar mest var. Vertíðin hófst í febrúar og stóð til 11. maí. Síðast á 19. öld og í upphafi hinnar 20. var mikið um að vera í Þorlákshöfn, blómleg útgerð, landbúnaður og verslun. Í árslok 1915 voru íbúar 31 talsins og 31 áraskip var gert út þaðan næstu vertíð. Í áhöfnum voru 458 manns þannig að þá var ólgandi mannlíf þar og sjóbúðir út um allt. Ungum körlum þótti mannsbragur af því að fá skipsrúm í Þorlákshöfn.
Eftir það fór mjög að halla undan fæti, skipum fækkaði og vertíðina 1934 var aðeins einn vélbátur gerður út frá Þorlákshöfn. Kaupfélag Árnesinga hóf markvissa uppbyggingu í Þorlákshöfn árið 1934. Byggt var fiskvinnsluhús svo ekki þurfti lengur að gera að undir berum himni. Mótorbátum fjölgaði og urðu þeir flestir 12 vertíðina 1940. Með stríðsárunum og umsvifum hersins bauðst mikil atvinna annarsstaðar og lagðist útgerð því af í Þorlákshöfn eftir vertíðina 1941.
Framkvæmdir hófust aftur árið 1946 þegar hafnargerð hófst að nýju. Árið 1950 hóf síðan Meitillinn hf, sem stofnaður var árið áður, öfluga útgerð í Þorlákshöfn. Í árslok 1950 voru aðeins 4 einstaklingar skráðir með lögheimili í Þorlákshöfn en ári síðar voru fyrstu fjölskyldurnar skráðar þar, alls 14 íbúar. Mikil fjölgun varð á 8. áratugnum einkum eftir eldgosið í Heimaey. Íbúar Þorlákshafnar voru 1.010 árið 1980 og 1.333 þann 1. des. 2000. Með vaxandi byggð hófst félagslíf og ýmis þjónusta. Í nóvemberlok 1956 byrjaði barnakennsla, börnin voru 9 og kennari Kristján skáld frá Djúpalæk. Bygging skólahúss hófst 1960 og Þorlákshöfn varð sjálfstætt skólahverfi með barnaskóla árið 1962. Fyrsti skólastjórinn var Gunnar Markússon.
Stjórnsýsla sveitarfélagsins fluttist til Þorlákshafnar árið 1970 og fyrsti sveitarstjórinn Svanur Kristjánsson var ráðinn.
Árið 1979 var hitaveita lögð frá Bakka í Ölfusi svo og bygging kirkju hafin og var hún vígð 1985. Sundlaug var tekin í notkun árið 1981 og stórt íþróttahús árið 1991. Kirkjurnar í Þorlákshöfn, Hjalla í Ölfusi og Strönd í Selvogi urðu sérstakt prestakall árið 1991 og séra Svavar Stefánsson fyrsti prestur þess. Árið 2000 var tekið í notkun nýtt menningar- og stjórnsýsluhús að Hafnarbergi 1. Auk bæjarskrifstofunnar eru þar veislu- og fundarsalir Versalir, bókasafn, félagsmiðstöðin Svítan og fleira.
Árið 2008 var Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Þorlákshöfn. Af því tilefni var farið í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum sem þykir hafa heppnast einstaklega vel. Íþróttamiðstöðin tekur á móti gestum af öllu Suðurlandi sem vill nýta sundaðstöðina og íþróttafélög sækja mjög í að halda mót og fara í æfingabúðir til Þorlákshafnar.

Magnús Haraldsson setur upp ljósmyndasýningu